Tilkynning um að ófjárhagslegur mótaðili fari upp fyrir fjárhæðarmörk

Með skilum á þessu eyðublaði lýsir ófjárhagslegur mótaðili því yfir að hann stöður hans í neðangreindum flokkum afleiðna sé yfir þeim fjárhæðarmörkum sem kveðið er á um í EMIR og undirgerðum hennar:

  • a) OTC-lánaafleiðusamningar
  • b) OTC-hlutabréfaafleiðusamningar
  • c) OTC-vaxtaafleiðusamningar
  • d) OTC-gjaldeyrisafleiðusamningar
  • e) OTC-hrávöruafleiðusamningar og aðrir OTC-afleiðusamningar sem ekki eru taldir upp í stafliðum a) til d)

Í tilfelli samstæða þarf einnig að fylla út C-hluta eyðublaðsins þar sem taldir eru upp þeir ófjárhagslegu mótaðilar innan samstæðunnar sem tilkynningaraðilinn tilheyrir og eru með lögfesti innan evrópska efnahagssvæðisins. Þá þarf að útlista alla tengda ófjárhagslega mótaðila í C-hluta eyðublaðsins. Ófjárhagslegir mótaðilar sem eiga ekki í OTC-afleiðuviðskiptum eiga ekki að vera í þeirri samantekt.

Nauðsynlegt er að fá aðgang að kerfi Seðlabankans til að geta sent inn umsóknir og tilkynningar. Sótt er um aðgang með því að fylla út formið á nýskráningarsíðunni.

Áður en aðili sendir tilkynningu þarf að fá aðgang að kerfi Fjármálaeftirlitsins. Þegar sá aðgangur er fenginn þarf aðili að innskrá sig og fylla út formið sem birtist síðan ætli hann að senda umsókn.

 

Innskráning

Nýskráning Týnt lykilorð






Þetta vefsvæði byggir á Eplica