Leiðbeinandi tilmæli
Málsnúmer | 4/2002 |
---|---|
Heiti | Leiðbeinandi tilmæli um reikningsskil vátryggingafélaga - [Ekki í gildi] |
Dagsetning | 12/4/2002 |
Starfsemi |
|
Reifun |
Fjármálaeftirlitið setur leiðbeinandi tilmæli um reikningsskil vátryggingafélaga. Reglugerð nr. 613/1996 um ársreikninga og samstæðureikninga vátryggingafélaga annarra en líftryggingafélaga var sett til lögfestingar á tilskipun 91/674/EBE um ársreikninga og samstæðureikninga vátryggingafélaga. Sérstök reglugerð, nr. 612/1996, var sett til þess að lögfesta ákvæði tilskipunarinnar um líftryggingafélög. Í ljósi reynslu af tilskipuninni og reglugerðunum skipaði iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið nefnd til þess að endurskoða reglugerðirnar og skilaði nefndin áliti í lok nóvember 2001. Reglugerð 613/1996 var breytt með reglugerð 956/2001, sem sett var í samræmi við tillögur fyrrgreindrar nefndar. Breytt var 10., 52. og 69. gr. ársreikningareglugerðarinnar. Ekki voru gerðar breytingar á reglugerð 612/1996. Í skýrslu um störf sín beindi nefndin auk þess tilmælum til vátryggingafélaga og til Fjármálaeftirlitsins um framkvæmd á reglugerðinni og um atriði sem nefndin taldi að ekki þyrfti að ákveða með reglugerð, en Fjármálaeftirlitið gæti gefið út túlkun eða leiðbeiningar um. Leiðbeinandi tilmæli 4/2002 eru sett til að veita leiðbeiningar um slík atriði, í framhaldi af nefndri skýrslu. Þessi leiðbeinandi tilmæli varða túlkun og framkvæmd á reglugerð 613/1996 um ársreikninga og samstæðureikninga vátryggingafélaga annarra en líftryggingafélaga. Tilmæli þessi lúta eingöngu að gerð ársreikninga. |
Skjöl | LT-2002_4-ekki-i-gildi.pdf |