Starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa
Einstaklingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu, ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og nánum samstarfsmönnum eru taldir vera í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, sbr. 6. tölulið 3. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Tilkynningarskyldum aðilum er skylt að hafa viðeigandi kerfi, ferla og aðferðir til að meta hvort innlendur eða erlendur viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi sé í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla sbr. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 140/2018 en við þær aðstæður skal framkvæmd aukin áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. gr. og uppfylla kröfur 17. gr. laga nr. 140/2018.
Seðlabanka Íslands er skylt að halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa, sbr. 10.gr. reglugerðar nr. 1420/2020 um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt sömu grein skal listinn birtur opinberlega á vefsvæði Seðlabanka Íslands. Á listanum skal koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi 1. febrúar 2021, sbr. 11. gr. Reglugerðarinnar.
Tilgreining starfsheita og útgáfa neðangreinds lista hefur ekki áhrif á skyldu tilkynningarskyldra aðila samkvæmt 17. gr. laga nr. 140/2018 að meta hverju sinni hvort innlendur eða erlendur viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi sé í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, en hægt er að hafa listann til hliðsjónar við matið.
Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa
Birt 1. febrúar 2021 I Uppfært 11. mars 2024Forseti Íslands og ráðherrar
Nafn | Starfsheiti |
Embætti forseta Íslands | Forseti Íslands |
Forsætisráðuneytið | Forsætisráðherra |
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið | Háskóla-, iðnaða- og nýsköpunarráðherra |
Dómsmálaráðuneytið | Dómsmálaráðherra |
Mennta- og barnamálaráðuneytið | Mennta- og barnamálaráðherra |
Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Fjármála- og efnahagsráðherra |
Heilbrigðisráðuneytið | Heilbrigðisráðherra |
Menningar- og viðskiptaráðuneytið | Menningar- og viðskiptaráðherra |
Innviðaráðuneytið | Innviðaráðherra |
Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið | Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra |
Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðherra |
Félags- og vinnumálaráðuneytið | Félags- og vinnumálaráðherra |
Matvælaráðuneytið | Matvælaráðherra |
Þingmenn
Nafn | Starfsheiti | Starfsheiti |
Flokkur fólksins | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Framsóknarflokkurinn | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Miðflokkurinn | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Píratar | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Samfylkingin | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Sjálfstæðisflokkurinn | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Viðreisn | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Vinstrihreyfingin – grænt framboð | Þingmenn | Varaþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi |
Einstaklingar í stjórnum stjórnmálaflokka
Nafn | Starfsheiti |
Flokkur fólksins | Stjórnarmenn |
Framsóknarflokkurinn | Aðilar í framkvæmdastjórn |
Miðflokkurinn | Stjórnarmenn |
Píratar | Aðilar í framkvæmdastjórn |
Samfylkingin | Stjórnarmenn |
Sjálfstæðisflokkurinn | Aðilar í framkvæmdastjórn |
Viðreisn | Stjórnarmenn |
Vinstrihreyfingin – grænt framboð | Stjórnarmenn |
Hæstaréttardómarar, Landsréttardómarar og dómarar
við sérdómstóla og íslenskir dómarar
við alþjóðadómstóla
Nafn | Starfsheiti |
Hæstiréttur Íslands | Dómarar |
Landsréttur | Dómarar |
Félagsdómur | Dómarar |
Endurupptökudómstóll | Dómarar |
Landsdómur | Dómarar |
Mannréttindadómstóll Evrópu (European Court of Human Rights, ECHR) | Dómarar |
EFTA-dómstóllinn (EFTA Court) | Dómarar |
Alþjóðlegi hafréttardómstóllinn (International tribunal for law of the sea, ITLOS) | Dómarar |
Hæstráðendur Seðlabanka Íslands og ríkisendurskoðandi
Nafn | Starfsheiti | Starfsheiti |
Seðlabanki Íslands | Seðlabankastjóri | Varaseðlabankastjórar |
Ríkisendurskoðandi | Ríkisendurskoðandi |
Sendiherrar og staðgenglar sendiherra
Nafn | Starfsheiti | Starfsheiti |
Sendiráð Íslands í Berlín | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Brussel | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Helsinki | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Kampala | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Lilongwe | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í London | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Moskvu | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Nýju Delí | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Osló | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Ottawa | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í París | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Peking | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Tókýó | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Varsjá | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Vín | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Sendiráð Íslands í Washington D.C. | Sendiherra | Staðgenglar sendiherra |
Fulltrúar í stjórn og framkvæmdastjóri fyrirtækis í eigu íslenska ríkisins
Kennitala | Heiti | Starfsheiti | Starfsheiti |
5210002790 | Auðkenni ehf. | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
5112032950 | Farice ehf. | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
7110110990 | Icelandic Trademark Holding | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
5502100370 | Isavia ohf. | Stjórnarmenn | Forstjóri |
7012966139 | Íslandspóstur ohf. | Stjórnarmenn | Forstjóri |
5005070550 | Keilir Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
4710080280 | Landsbankinn hf. | Bankaráðsmenn | Bankastjóri |
4402022920 | Landskerfi bókasafna hf. | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
5808042410 | Landsnet hf. | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri og forstjóri |
4202691299 | Landsvirkjun | Stjórnarmenn | Forstjóri |
6709060190 | Matís ohf. | Stjórnarmenn | Forstjóri |
6608770299 | Orkubú Vestfjarða ohf. | Stjórnarmenn | Orkubússtjóri |
5202692669 | Rarik ohf. | Stjórnarmenn | Forstjóri |
5802141180 | Vigdísarholt ehf. | Stjórnarmenn | Framkvæmdastjóri |
Íslenskir fyrirsvarsmenn alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana
Nafn | Starfsheiti | Starfsheiti | Starfsheiti |
Alþjóðabankinn | Framkvæmdastjóri | Aðstoðarframkvæmdastjóri | Stjórnarmenn |
European Free Trade Association (EFTA) | Framkvæmdastjóri | Aðstoðarframkvæmdastjóri | Stjórnarmenn |
EFTA Surveillance Authority | Framkvæmdastjóri | Aðstoðarframkvæmdastjóri | Stjórnarmenn |
Uppbyggingarsjóður EES | Framkvæmdastjóri | Aðstoðarframkvæmdastjóri | Stjórnarmenn |