MiFID II og MiFIR
Lög nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga tóku gildi 1. september 2021. Lögin innleiða ákvæði MiFID II tilskipunarinnar auk þess sem þau veita MiFIR reglugerðinni og tveimur framseldum reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB lagagildi.
Gildissvið MiFID II er víðtækara en í MiFID I regluverkinu og nær til að mynda til samsettra innstæðna. Ný tegund viðskiptavettvangs, skipulegt markaðstorg, er kynnt til sögunnar. Þá eru gerðar meiri kröfur um veitingu starfsleyfis, skipulagskröfur, fjárfestavernd og viðskiptahætti verðbréfafyrirtækja.
MiFIR reglugerðin felur í sér víðtækar kröfur um gagnsæi fyrir og eftir viðskipti. Þá er Seðlabanka Íslands, ásamt öðrum lögbærum yfirvöldum á EES-svæðinu færðar valdheimildir til að hlutast til um markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna fjármálaafurða og samsettra innstæðna með tiltekin einkenni, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Íhlutunarheimildir geta einnig náð til tiltekinnar fjármálastarfsemi eða framkvæmdar á fjármálamarkaði. ESMA og EBA fá einnig valdheimildir til að beita tímabundnum afurðaíhlutunum.
Seðlabanki Íslands tekur á móti fyrirspurnum vegna MiFID II og MiFIR í gegnum netfangið: mifid2@sedlabanki.is.
Afleiddar gerðir
- Framseldar reglugerðir sem hafa lagagildi í íslenskum rétti fjalla annars vegar um skipulagskröfur og rekstrarskilyrði verðbréfafyrirtækja (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/565) og hins vegar um skilgreiningar, samþjöppun eignasafns og eftirlitsráðstafanir hvað varðar afurðaíhlutun og stöður (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/567).
- Reglugerð um verndun fjármálagerninga og fjármuna viðskiptavina, skyldur við vöruþróun og um veitingu og móttöku þóknana, umboðslauna eða hvers konar ávinnings innleiðir framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/593 .
- Aðrar afleiddar reglugerðir í MiFID II og MiFIR regluverkinu eru innleiddar með reglum Seðlabanka Íslands .
- Seðlabanki Íslands styðst einnig við viðmiðunarreglur ESMA sem settar eru með stoð í MiFID II og MiFIR í eftirlitsframkvæmd. Yfirlit yfir viðmiðunarreglurnar er að finna á vefsíðu Seðlabankans.
Gagnlegt efni
- Upplýsingasíða ESMA um MiFID II
- Spurningar og svör ESMA um MiFID II og MiFIR
- Gagnvirk reglubók ESMA (e. Interactive Single Rulebook)
- Yfirlit framkvæmdastjórnar ESB yfir afleiddar gerðir MiFID II tilskipunarinnar
- Yfirlit framkvæmdastjórnar ESB yfir afleiddar gerðir MiFIR
- Skýrsla fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 2016 um helstu breytingar sem MiFID II og MiFIR hefur í för með sér
Glærukynningar frá MiFID II / MiFIR kynningarfundi 13. febrúar 2019
Fjármálaeftirlitið hélt, hinn 13. febrúar 2019, kynningarfund á völdum atriðum úr MiFID II og MiFIR.
- Gagnsæi og innmiðlun
- Hvatagreiðslur
- Upplýsingagjöf um kostnað og gjöld
- Mat á hæfi og tilhlýðileika
- Product Governance
- Þekking og hæfni