AIF og AIFM skýrslur
Gagnaskilakröfur AIFM (Alternative Investment Fund Managers) tilskipunar Evrópusambandsins (2011/61/EU) voru innleiddar hérlendis með gildistöku laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Lögin mæla m.a. fyrir um upplýsingar sem rekstraraðilum sérhæfðra sjóða ber að standa skil á til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um sig og sjóðina er þeir stýra.
Leiðbeiningar um skýrsluskil og innihald AIF og AIFM skýrslna
Skýrsla rekstraraðila – AIFM skýrsla
Skýrslan tekur á upplýsingum sem skila ber skv. 48. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og ber starfsleyfisskyldum rekstraraðilum að skila henni.
Skilatíðni er skv. 3. mgr. 110. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2013, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB, að því er varðar undanþágur, almenn rekstrarskilyrði, vörsluaðila, vogun, gagnsæi og eftirlit, sem innleidd var með reglugerð nr. 555/2020, um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Hún er því hálfsársleg fyrir félög sem falla undir a-lið 3. mgr. og ársfjórðungsleg fyrir félög sem falla undir b-lið 3. mgr.
Skýrsla sérhæfðra sjóða – AIF skýrsla
Skilatíðni er skv. 3. mgr. 110. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2013, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB, að því er varðar undanþágur, almenn rekstrarskilyrði, vörsluaðila, vogun, gagnsæi og eftirlit, sem innleidd var með reglugerð nr. 555/2020, um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Hún er því hálfsársleg fyrir félög sem falla undir a-lið 3. mgr. og ársfjórðungsleg fyrir félög sem falla undir b-lið 3. mgr., en jafnframt skulu skráningarskyldir rekstraraðilar skila skýrslunni árlega, sbr. 5. mgr. 5. gr. sömu reglugerðar.
Evrópska verðbréfaeftirlitsstofnunin (European Securities and Markets Authority, ESMA) hefur gefið út XML-skemu vegna þessarar upplýsingagjafar og eru þau aðgengileg á eftirfarandi slóð.
Gögnunum verður aðeins veitt viðtaka á XML formi í gagnaskilakerfi fjármálaeftirlitsins. Við móttöku eru gögnin prófuð á grunni útgefinna gagnareglna ESMA. Falli gögnin á þeim prófum er viðtöku hafnað, en gögnin skulu uppfylla form- og innihaldskröfur útgefnar af ESMA.
- Viðmiðunarreglur ESMA (ESMA/2014/869) um skilakröfur vegna AIFM tilskipunarinnar má nálgast hér
- ESMA birtir spurningar sem borist hafa vegna AIFMD og svör byggð á túlkunum hennar á eftirfarandi slóð
Skil í prófunarumhverfi hjá fjármálaeftirlitinu
Opnað hefur verið fyrir skil AIF og AIFM-skýrslna í prófunarumhverfi.
Tekið er við skráningum til þátttöku í netfanginu adstod@sedlabanki.is
Til að hægt sé að senda inn gagnaskilatilvik þarf að tilgreina auðkenni gagnaskilanna, en þau eru 478 fyrir AIFM-skýrsluna og 477 fyrir AIF-skýrsluna.
Sjá nánar leiðbeiningar um gagnaskil í gegnum vefþjónustu hér á vef fjármálaeftirlitsins.
Önnur reglubundin skil rekstraraðila sérhæfðra sjóða
Fyrir nýja skýrsluskilaaðila er vakin sérstök athygli á annars vegar skýrslu um sundurliðun fjárfestinga verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og hins vegar skýrslu um sundurliðun fjárfestinga og skulda sérhæfðra sjóða annarra en fyrir almenna fjárfesta. Senda ber sérgreindar upplýsingar fyrir hvern sjóð í rekstri rekstraraðila þar sem tilgreindar eru allar fjárfestingar hvers sjóðs. Leiðbeiningar um útfyllingu skýrslnanna má nálgast hér:
- Verðbréfasjóðir og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta
- Sérhæfðir sjóðir aðrir en fyrir almenna fjárfesta
Ýmsir gagnlegir AIFM tenglar
Ýmsir tenglar vegna AIFM tilskipunarinnar og innleiðingar hennar í íslenskan rétt
- Fréttatilkynning á vef Seðlabankans um gildistöku laga nr. 45/2020 og rglg. 555/2020
- Lög nr. 45/2020 - Lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
- Rglg. Nr. 555/2020 - Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
- Rgl.nr. 815/2020 - Reglur um ákvörðun á tegundum rekstraraðila sérhæfðra sjóða, meðal annars um afmörkun á því hvort rekstraraðili teljist reka opinn sjóð, lokaðan eða bæði
- EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 - AIFM-tilskipun tekin upp í EES-samninginn með birtingu í EES-viðbæti Stjórnartíðinda Evrópusambandsins
Ýmsir AIFM tenglar á vefsíðu ESMA
- ESMA Guidelines on reporting obligations under Article 3(3)(d) and 24(1), (2) and (4) of the AIFMD
- ESMA Final Report on Guidelines on reporting obligations under Article 3(3)(d) and 24(1), (2) and (4) of the AIFMD
- Information for the effective monitoring of systemic risk under Article 24(5), first sub-paragraph, of the AIFMD
- AIFMD Consolidated reporting template – excel.file
- Tables 1-7 of Annex 2 of ESMA Guidelines on reporting obligations – excel.file
- Tables 8-9-10 of Annex 2 of ESMA Guidelines on reporting obligations – excel.file
- Latest AIFMD IT technical guidance and XML documents