Fjártækni - Þjónustuborð
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands rekur þjónustuborð fyrir alla sem kunna að hafa spurningar um eftirlit á fjármálamarkaði vegna fjártækni (e. FinTech).
Fjármálaeftirlitið býður aðilum sem veita, eða hyggjast veita, þjónustu á sviði fjártækni, að fylla út gátlista um starfsemina og senda til sérfræðinga fjármálaeftirlitsins á fintech@sedlabanki.is. Þannig má meðal annars greina hvort leyfi þurfi til starfseminnar. Fylla þarf út gátlistann og senda fjármálaeftirlitinu sé óskað eftir aðkomu stofnunarinnar. Sé þörf á, stendur einnig til boða að eiga frekari samskipti og fá nánari upplýsingar hjá fjármálaeftirlitinu.
- Svaraðu gátlistanum og sendu fjármálaeftirlitinu á fintech@sedlabanki.is
- Fjármálaeftirlitið sendir viðbrögð innan 10 virkra daga.
- Í kjölfarið er hægt að fá ráðgjöf símleiðis, alls í 30 mínútur að hámarki, eða óskað eftir fundi með sérfræðingum.
Gátlisti fyrir fund með fjármálaeftirlitinu
Þá er einnig hægt er að senda almenna fyrirspurn um eftirlit með fjártækni á fintech@sedlabanki.is. Almennum fyrirspurnum er einnig svarað innan 10 daga.
Áhugavert efni:
- Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið
- Fjártækniklasinn
- EBA fintech knowledge hub
- European forum for innovation facilitators (Sandkassar og fjártæknisetur fjármálaeftirlita í Evrópu)
- EU Almenn stefna í fjártækni
- EU Markets in Crypto Assets (MiCA)