Gagnsæi á vátryggingamarkaði
Seðlabanki Íslands birtir sértækar upplýsingar um vátryggingastarfsemi, í samræmi við lög og tilskipun EB, hvað varðar lög, stjórnsýslufyrirmæli og almennar leiðbeiningar, eftirlitsferlið, tölfræðileg gögn og fleira.
Upplýsingar eru birtar skv. 30. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi sbr. reglugerð nr. 120/2020 um sniðmát og birtingu Fjármálaeftirlitsins á sértækum upplýsingum samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi, sem innleiðir framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 2015/2451 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát og fyrirkomulag við birtingu eftirlitsyfirvalda á sértækum upplýsingum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB.
Upplýsingar sem Seðlabankinn birtir í samræmi við 2. mgr. 31. gr. tilskipunar 2009/138/EB má sjá hér að neðan.
Lög, stjórnsýslufyrirmæli og almennar leiðbeiningar
Fletta má upp lögum og tilmælum sem gilda um starfsemi vátryggingafélaga með einföldum hætti í leitarvél Seðlabankans.
Eftirlitsferlið
Almenn viðmið og aðferðafræði vegna eftirlitsferlis Seðlabankans með vátryggingafélögum eru birt á vefsíðu Seðlabankans.
Samantekin tölfræðileg gögn
- Sniðmát A fyrir birtingu samantekinna tölfræðilegra gagna að því er varðar vátrygginga- og endurtryggingafélög sem lúta eftirliti skv. tilskipun 2009/138/EB.
- Sniðmát B fyrir birtingu samantekinna tölfræðilegra gagna að því er varðar vátryggingasamstæður sem lúta eftirliti skv. tilskipun 2009/138/EB.
- Sniðmát C fyrir birtingu megindlegra samantekinna tölfræðilegra gagna um eftirlitsyfirvaldið.
- Sniðmát D fyrir birtingu eigindlegra samantekinna tölfræðilegra gagna um eftirlitsyfirval.
Nýting valkosta samkvæmt tilskipun 2009/138/EB
- Sniðmát fyrir birtingu upplýsinga er varða nýtingu valrétta samkvæmt d-lið 2. mgr. 31.gr. tilskipunar 2009/138/EB.
Sniðmátin eru þróuð af Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni (EIOPA) og birt í framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/2451, tæknilegum framkvæmdarstaðli varðandi upplýsingagjöf eftirlitsstofnana. Eitt af markmiðunum með birtingu upplýsinganna er að auðvelda samanburð á framkvæmd eftirlits milli eftirlitsstofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins.