Brot fjárfestingarsjóða í rekstri Landsbréfa hf. gegn 1. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011
Fjármálaeftirlitinu barst tilkynning frá Landsbréfum hf. þann 26. október
2018 þess efnis að tveir fjárfestingarsjóðir í rekstri félagsins hefðu farið út
fyrir fjárfestingarheimildir 1. mgr. 59. gr., sbr. 3. tölul. 40. gr. laga nr.
128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði þann 25.
október 2018. Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum er fjárfestingarsjóðum
óheimilt að eignast meira en 25% af hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóðs og
annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu.
Gagnsaei-Landsbref-17052019