Brot fjárfestingarsjóðs í rekstri Júpíters rekstrarfélags hf. gegn 1. mgr. 39. gr., sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 128/2011
Fjármálaeftirlitinu barst tilkynning frá Júpíter rekstrarfélagi hf. þann 8.
mars 2019 þess efnis að fjárfestingarsjóður í rekstri félagsins hefði farið út
fyrir fjárfestingarheimildir 1. mgr. 39. gr., sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr.
128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði þann 7.
mars 2019. Í 1. mgr. fyrrgreinds lagaákvæðis er tiltekið að fjárfestingarsjóðum
sé heimilt að fjárfesta í hlutdeildarskírteinum annarra verðbréfasjóða og
annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Þó er þeim ekki heimilt að binda meira
en 20% af eignum sínum í hlutdeildarskírteinum einstakra verðbréfasjóða eða
fjárfestingarsjóða. Brotið varð vegna misskilnings sjóðsstjóra og bakvinnslu.
Gagnsaei-Jupiter-02102019-1