Niðurstaða athugunar á aukagreiðslum Landsbankans hf. til starfsmanna
Fjármálaeftirlitið
hefur haft til athugunar hvort Landsbankinn hf. hafi brotið gegn 57. gr. a laga
nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (fftl.), og 3. gr. reglna nr. 700/2011 og 3.
gr. reglna nr. 388/2016, um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um
fjármálafyrirtæki, með því að hafa á árunum 2014 til 2016 greitt hluta af
starfsmönnum sínum aukagreiðslur sem komu til viðbótar föstum launum þeirra án
þess að það hafi verið gert á grundvelli kaupaukakerfis.
Gagnsaei-Landsbankinn-05042018