Niðurstaða athugunar á eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Landsbankanum hf.
Fjármálaeftirlitið hóf athugun á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Landsbankanum hf. með bréfi dagsettu hinn 23. júlí 2015. Athugunin beindist að tilteknum þáttum er varða eftirlit Landsbankans hf. samkvæmt lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmið athugunarinnar var að skoða hvort staðið hefði verið með viðunandi hætti að áreiðanleikakönnun, sem framkvæma skal við upphaf samningssambands, sem og hvort reglubundið eftirlit hefði átt sér stað í kjölfarið, sérstaklega með tilliti til þess hvort uppfærðra upplýsinga um viðskiptavini hefði verið aflað.
Gagnsaeistilkynning-AML-Landsbankinn-15-1-2016