Niðurstaða athugunar á fjárfestingum fyrir hönd viðskiptavina eignastýringar Kviku banka hf. og Virðingar hf.
Fjármálaeftirlitið
hóf athugun þann 14. júlí 2017 á fjárfestingum Kviku banka hf. og Virðingar hf.
fyrir hönd viðskiptavina í eignastýringu. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort fjárfestingar
væru í samræmi við skilgreinda fjárfestingarstefnu eignastýringarsamninga.
Jafnframt var það markmið athugunarinnar að kanna hvernig lagt er mat á
fjárfestingarkosti sem ekki eru skráðir á skipulegan verðbréfamarkað og þá
hvernig samanburði við aðra fjárfestingarkosti er háttað.
Gagnsaei-Kvika_8.02.2018