Niðurstaða athugunar á fylgni tveggja fjárfestingarsjóða í rekstri Stefnis hf. við tilteknar fjárfestingarheimildir laga
Fjármálaeftirlitið
hóf athugun á starfsemi Stefnis hf. með bréfi dagsettu hinn 13. febrúar 2017.
Athugunin beindist að fylgni tveggja fjárfestingarsjóða í rekstri Stefnis hf.
við 1. mgr. 59. gr., sbr. 2. og 4. tölul. 40. gr. laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði,
fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Í nefndum lagaákvæðum eru settar þær
takmarkanir á eignasafn sjóðs að honum er hvorki heimilt að eignast meira en
10% af skuldaskjölum einstakra útgefenda verðbréfa, þó aldrei umfram 25% í
hverri útgáfu, né meira en 10% af peningamarkaðsgerningum einstakra útgefenda.
Athugunin miðaðist við eignasafn sjóðanna um síðastliðin áramót.
Gagnsaei-Stefnir-1-12-2017