Niðurstaða athugunar á greiðslu kaupauka til tveggja framkvæmdastjóra Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Fjármálaeftirlitið
tók til athugunar kaupaukagreiðslur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) sem
veittar voru tveimur framkvæmdastjórum TM vegna ársins 2014. Hvor um sig fékk
kaupauka sem nam 10% af árslaunum þrátt fyrir að hafa ekki náð tilskildum
lágmarksárangri fyrir veitingu þeirra samkvæmt lykilmælikvörðum settum af
stjórn TM í samræmi við kaupaukakerfi félagsins. TM rökstuddi veitingu
kaupaukanna með tilvísan til 79. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög (hfl.)
þ.e. að kaupaukakerfi TM væri undirskjal starfskjarastefnu félagsins sem stjórn
gæti vikið frá enda hefði frávikið verið rökstutt sérstaklega með vísan til
árangurs aðila í starfi og rökstuðningurinn skráður í gerðarbók stjórnar.
Frávikið hefði jafnframt verið í fullu samræmi við skilyrði 55. gr. laga nr.
56/2010 um vátryggingastarfsemi (vtrl.) og reglur Fjármálaeftirlitsins nr.
299/2012 um kaupaukakerfi vátryggingafélaga. TM hefði því verið heimilt að
víkja að nokkru frá ákvæði kaupaukakerfis félagsins um þetta efni.
Gagnsaei-Tryggingamidstod-13-5-2016