Niðurstaða athugunar á meðhöndlun kvartana hjá Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
Fjármálaeftirlitið hóf í október 2018 athugun á
meðhöndlun kvartana hjá Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Markmið athugunarinnar
var að skoða sérstaklega hvort framkvæmdin væri í samræmi við II. kafla reglna nr. 673/2017
um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti vátryggingafélaga, en þar er fjallað
um samskipti vátryggingafélaga við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana.
Gagnsaeistilkynning-_-Sjova-25012019