Niðurstaða athugunar á meðhöndlun kvartana hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga
Fjármálaeftirlitið hóf í júlí 2018 athugun á meðhöndlun kvartana hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga. Markmið athugunarinnar var að skoða sérstaklega hvort framkvæmd sparisjóðsins væri í samræmi við II. kafla reglna nr. 672/2017 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, en þar er fjallað um samskipti fjármálafyrirtækja við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana.