Niðurstaða athugunar á túlkun skilmála og framkvæmd tjónsuppgjörs vegna fjölskyldutrygginga hjá Sjóvá – Almennum tryggingum hf. og Vátryggingafélagi Íslands hf.
Fjármálaeftirlitið hóf í október 2018 athugun á skilmálum
fjölskyldutrygginga og túlkun þeirra í tengslum við framkvæmd á tjónsuppgjöri
vegna reiðhjólaóhappa og slysa. Markmið athugunarinnar var að skoða sérstaklega
hvort framkvæmdin væri í samræmi við II. kafla laga nr. 30/2004 um
vátryggingasamninga, 9. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi og 4. gr.
reglna nr. 673/2017 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti vátryggingafélaga.
Gagnsæistilkynning