Niðurstaða athugunar á verklagi við uppgjör á bótum vegna ökutækjatjóna hjá Tryggingamiðstöðinni
Fjármálaeftirlitið hóf
athugun á uppgjöri Tryggingamiðstöðvarinnar á bótum vegna ökutækjatjóna þegar
um svokallað altjón er að ræða, en Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með
viðskiptaháttum vátryggingafélaga samkvæmt 10 gr. laga nr. 100/2016 um
vátryggingastarfsemi, þ.m.t. tjónsuppgjöri. Með altjóni er átt við að tjón á bifreið er
metið svo mikið að ekki sé skynsamlegt að framkvæma viðgerð á bifreiðinni,
heldur kaupir vátryggingarfélag þá bifreiðina af viðkomandi eiganda á
markaðsvirði hennar á tjónsdegi.
Gagnsaeistilkynning-TM-20122018