Niðurstaða um brot Reykjavíkurborgar á 126. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti
Hinn 28. júní 2019 komst Fjármálaeftirlitið að þeirri
niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefði brotið gegn 3. ml. 1. mgr. 126. gr. laga
nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.) þar sem Reykjavíkurborg tilkynnti
Fjármálaeftirlitinu ekki samdægurs um að hafa lánað viðskiptavaka skuldabréf
útgefin af borginni (svokölluð verðbréfalán). Um var að ræða nokkurn fjölda
tilvika frá árinu 2009 og til 28. febrúar
2019.
Gagnsaei-Reykjavikurborg-14082019