Niðurstöður athugunar á áhættustýringu Almenna lífeyrissjóðsins
Fjármálaeftirlitið hóf athugun
á framkvæmd áhættustýringar hjá Almenna lífeyrissjóðinum í maí 2016. Markmið
athugunarinnar var að kanna hvernig áhættustýringu sjóðsins væri háttað og
hvort hún samræmdist leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2013 um áhættustýringu
(eftirlitskerfi) samtryggingadeilda lífeyrissjóða. Tilmælin eru sett til
leiðbeiningar og nánari skýringa fyrir samtryggingadeildir lífeyrissjóða
varðandi þær lágmarkskröfur sem meðal annars koma fram í 9. tölul. 3. mgr. 29.
gr. og 1. mgr. 36. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
starfsemi lífeyrissjóða og reglugerð nr. 916/2009 um fjárfestingarstefnu og
úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða. Niðurstöður athugunarinnar lágu fyrir í ágúst
2016.
Gagnsaei-Almenni---28092016