Stjórnvaldssekt vegna brota á 1. mgr. 45. gr., 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 122. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.
Einn megintilgangur yfirtökureglna laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.) er að tryggja að minnihluta hluthafa bjóðist jafn góð kjör og öðrum hluthöfum stóð til boða frá þeim sem náðu yfirráðum í viðkomandi félagi. Meginreglan um jafnræði hluthafa kemur skýrt fram í lögunum og ljóst er að engum hluthafa á að bjóðast betri kjör en öðrum þegar félag er yfirtekið.