nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi, með vísan til 1. og 3. mgr. 9 gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, athugun á fjárfestingum, lánveitingum og viðskiptum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á tímabilinu 17. september 2007 til 30. apríl 2010. Í kjölfar hennar aflaði Fjármálaeftirlitið fyllri gagna í samskiptum við félagið.
Lesa meiraÞann 13. september 2011 gerði Fjármálaeftirlitið athugasemd við ummæli Birkis Hólm Guðnasonar (BHG) vegna brots hans á 2. tölul. 1. mgr. 123. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.).
Lesa meiraÞann 9. ágúst 2011 gerðu Fjármálaeftirlitið og Nýherji hf. með sér sátt vegna brots félagsins á 127. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.).
Lesa meiraÞann 20. ágúst 2011 gerðu Fjármálaeftirlitið og Lánasjóður sveitarfélaga ohf. með sér sátt vegna brots sjóðsins á 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.).
Lesa meiraFramkvæmd var athugun á starfsemi Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar með heimsókn og gagnaöflun þann 4. apríl 2011 með vísan til 44. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna tímamarka. Voru drög að skýrslunni afhent sjóðnum þann 18. maí 2011 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sjóðsins og frekari upplýsingum á framfæri. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 24. júní 2011, var tekið tillit til þeirra athugasemda eftir því sem tilefni þótti til.
Lesa meiraÞann 13. júlí 2011 gerðu Fjármálaeftirlitið og HS Orka hf. með sér sátt vegna brots félagsins á 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.)
Lesa meiraÞann 31. maí 2011 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvörðun um að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 15 milljónir króna á EA fjárfestingarfélag hf. Ákvörðunin var byggð á 9. tölulið 1. mgr. 110. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. nú 13. tölulið.
Lesa meiraÞann 11. júlí 2011 gerðu Fjármálaeftirlitið og Farice ehf. með sér sátt vegna brots félagsins á 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.)
Lesa meiraFramkvæmd var athugun á starfsemi Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV með heimsókn og gagnaöflun þann 20. janúar 2011, með vísan til XIII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 66. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og 9. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið tók til athugunar framsetningu auglýsingar eignastýringar MP banka hf. sem birt var í Fréttablaðinu þann 23. maí 2011.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið kærði félag og eiganda þess til ríkislögreglustjóra skv. 148. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.) þann 30. nóvember 2010, fyrir meint brot á 117. gr. fyrrgreindra laga. Háttsemin átti sér stað þann 22. september 2010. Um er að ræða mál er varðar a-lið 1. tölul. 1. mgr. 117. gr. vvl.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið framkvæmdi, með vísan til 1. og 3. mgr. 9 gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, athugun á ákveðnum þáttum í starfsemi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á tímabilinu 17. september 2007 til 30. apríl 2010. Í kjölfar hennar aflaði Fjármálaeftirlitið fyllri gagna í samskiptum við félagið.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið framkvæmdi, með vísan til 1. og 3. mgr. 9 gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, athugun á ákveðnum þáttum í starfsemi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) á tímabilinu febrúar 2008 til febrúar 2010. Í kjölfar þessa aflaði Fjármálaeftirlitið fyllri gagna í samskiptum við forsvarsaðila félagsins.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið vísar til fyrri gagnsæistilkynningar sem birt var á heimasíðu þess þar sem gerð var grein fyrir tilteknum atriðum sem þörfnuðust úrbóta í kjölfar athugunar á fjárfestingum hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið hefur krafist þess að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) endurskoði iðgjald launagreiðenda til A-deildar sjóðsins, þar sem ákvæði 13. gr. laga nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins kveður á um að iðgjald launagreiðenda á hverjum tíma sé við það miðað að það dugi til að lífeyrissjóðurinn geti staðið við heildarskuldbindingar sínar. Fjármálaeftirlitið fellst ekki á þau sjónarmið sem m.a. komu fram í ársskýrslu LSR fyrir árið 2009, að LSR falli undir ákvæði 39. gr. laga nr. 129/1997, sem gilda um almenna lífeyrissjóði og veitir þeim lífeyrissjóðum heimild til að hafa 10% mun á eignaliðum og lífeyrisskuldbindingum, eða bráðabirgðaákvæði nr. VI við þau lög sem leyfir að munurinn geti verið 15% árin 2008, 2009 og 2010.
Lesa meiraÁkvörðun Fjármálaeftirlitsins vegna stöðu Spkef sparisjóðs.
Framkvæmd var athugun á fjárfestingum Sameinaða lífeyrissjóðsins með heimsókn og gagnaöflun dagana 10.-12. nóvember 2010 með vísan til 44. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna tímamarka. Voru drög að skýrslunni afhent sjóðnum þann 5. janúar 2011 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sjóðsins og frekari upplýsingum á framfæri fyrir 26. janúar. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 11. febrúar 2011, var tekið tillit til sjónarmiða sjóðsins eftir því sem tilefni þótti til. Fjármálaeftirlitið óskar eftir því við stjórn lífeyrissjóðsins að hún feli innri eftirlitsaðila að gera sérstaka grein fyrir því hvort gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana vegna ábendinga og athugasemda sem fram koma í þessari skýrslu. Greinagerð innra eftirlits verði send Fjármálaeftirlitinu eigi síðar en 30. apríl 2011.
Lesa meiraÞann 20. desember 2010 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvörðun um að sekta Exista hf. vegna brota á 1. og 3. mgr. 122. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.).
Lesa meiraÞann 26. júní 2009 gerðu Fjármálaeftirlitið og Vopnafjarðarhreppur með sér sátt vegna brots Vopnafjarðarhrepps á 128. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.).
Lesa meiraFjármálaeftirlitið hefur haft til skoðunar undanþágubeiðni Framtakssjóðs Íslands slhf. (Framtakssjóður) frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf. (Icelandair), sbr. 100. gr. a laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti (vvl.), en þann 14. júní 2010 undirrituðu Framtakssjóðurinn og Icelandair áskriftarsamning um nýtt hlutafé í Icelandair þar sem Framtakssjóðurinn skráði sig fyrir 1.200 milljón hlutum á genginu 2,5 krónur eða að söluverði 3 milljarðar. Var m.a. gert skilyrði fyrir kaupunum að Framtakssjóðnum yrði veitt undanþága frá yfirtökuskyldu skv. 100. gr. a vvl. gerðist þess þörf. Að uppfylltum skilyrðum sem sett eru fyrir fjárfestingu Framtakssjóðsins mun sjóðurinn með kaupum sínum eignast 32,5% hlutafjár í Icelandair. Þannig mun Framtakssjóðurinn eignast 32,5% af atkvæðisrétti í Icelandair og fara þar með yfir mörk 1. töluliðar 1. mgr. 100. gr. vvl. og verða tilboðsskyldur gagnvart öðrum hluthöfum Icelandair.
Lesa meira