Allra-ráðgjöf ehf.
Allra-ráðgjöf ehf., sem hafði starfsleyfi vátryggingamiðlara, sbr. ákvæði laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, hefur skilað inn starfsleyfi sínu, skv. 36. gr. fyrrgreindra laga. Í samræmi við tilkynningu félagsins um að það hafi hætt starfsemi, sem vátryggingamiðlari, hefur Fjármálaeftirlitið fellt félagið út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning þess efnis birt í Lögbirtingablaðinu.