nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

VÍS eignaðist á árinu 2017 virkan eignarhlut í Kviku og er bankinn sem stendur hlutdeildarfélag VÍS. Í lögum nr. 61/2017 um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum er Fjármálaeftirlitinu falið að meta það hvort tilgreina beri fjármálasamsteypu, skv. 3.-5. gr. þeirra laga. Það er mat Fjármálaeftirlitsins að tilgreining fjármálasamsteypu í þessu tilfelli myndi ekki skila Fjármálaeftirlitinu viðbótarupplýsingum í samræmi við markmið með viðbótareftirliti og einnig að slík tilgreining hefði óverulega hagsmuni í för með sér fyrir viðbótareftirlit. Með hliðsjón af framangreindu hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að nýta heimild í 2. mgr. 5. gr. laganna, til að ákveða að samstæðan teljist ekki fjármálasamsteypa í merkingu laganna.
Lesa meiraEvrópska verðbréfamarkaðseftirlitið (ESMA) hefur samþykkt að banna markaðssetningu, dreifingu og sölu á tvíundar valréttum (e. binary options) til almennra fjárfesta. Að auki hefur ESMA sett skorður á markaðssetningu, dreifingu og sölu á mismunasamningum (e. contracts for difference).
Lesa meiraVegna viðhalds verður gagnaskilakerfi (skýrsluskilakerfi) FME lokað frá kl. 12:00 í dag 26 mars. Stefnt er að því að opna kerfið í fyrramálið klukkan 9:00. Þeim tilmælum er beint til notenda að vera vakandi fyrir villum eftir opnun kerfisins og senda ábendingu á hjalp@fme.is ef vart verður við eitthvað óvenjulegt. Notendur eru beðnir um að sýna biðlund á meðan á viðhaldi stendur.
Lesa meiraEvrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðseftirlitsstofnunin (EIOPA) kallar eftir áhugasömum aðilum af lífeyris- og vátryggingamarkaði sem vilja taka þátt í Insurance and Reinsurance Stakeholder Group (IRSG) og í Occupational Pensions Stakeholder Group (OPSG). Hægt er að sjá frekari upplýsingar og nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu EIOPA https://www.eiopa.europa.eu/content/eiopa-launches-selection-procedure-members-its-stakeholder-groups.
Lesa meiraFyrsta tölublað ársins af Fjármálum, vefriti Fjármálaeftirlitsins, er komið út. Í blaðinu fjalla þau Finnur Tryggvi Sigurjónsson og Úrsúla Ingvarsdóttir, sérfræðingar í vettvangsathugunum, um virka stýringu hlutabréfasjóða og Loftur Hreinsson, sérfræðingur í áhættugreiningu, skrifar grein undir yfirskriftinni: Samsettur áhættuvísir fyrir íslenska fjármálakerfið. Þá skrifar Jón Ævar Pálmason, sérfræðingur í áhættugreiningu, greinina: Opinber birting upplýsinga um vátryggingastarfsemi og Hjálmar Stefán Brynjólfsson, lögfræðingur á sviði yfirlögfræðings glímir við spurninguna: Hvenær öðlast PSD2 gildi hér á landi?
Lesa meiraFjármálaeftirlitið minnir á mikilvægi þess að um upplýsta ákvörðun sé að ræða þegar ákveðið er að færa líf- og/eða sjúkdómatryggingar milli vátryggingafélaga.
Lesa meiraÁrni Reynisson og Árni Reynisson ehf., sem höfðu starfsleyfi vátryggingamiðlara samkvæmt lögum nr. 32/2005, um miðlun vátrygginga, hafa skilað inn starfsleyfum sínum í samræmi við 36. gr. fyrrgreindra laga. Í samræmi við tilkynningu þar um hefur Fjármálaeftirlitið fellt aðilana út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning þess efnis birt í Lögbirtingablaði.
Lesa meiraÁ árinu 2017 óskaði Fjármálaeftirlitið eftir því að stjórnir tiltekinna banka, sparisjóða, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og Íbúðalánasjóðs gerðu sjálfsmat í því skyni að leggja mat á hvort stjórn eftirlitsskylda aðilans væri þannig samsett að hún byggi sameiginlega yfir fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu til að skilja þá starfsemi sem eftirlitsskyldi aðilinn stundaði, þ.m.t. helstu áhættuþætti.
Lesa meiraGengið hefur verið frá ráðningu þriggja framkvæmdastjóra á nýjum eftirlitssviðum Fjármálaeftirlitsins, en störfin voru auglýst laus til umsóknar þann 13. janúar. Björk Sigurgísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hlítingar og úttekta, Finnur Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri bankasviðs og Páll Friðriksson framkvæmdastjóri markaða og viðskiptahátta.
Lesa meira