Fyrsta tölublað Fjármála 2018 er komið út
Fyrsta
tölublað ársins af Fjármálum, vefriti Fjármálaeftirlitsins, er komið út. Í blaðinu fjalla þau Finnur
Tryggvi Sigurjónsson og Úrsúla Ingvarsdóttir, sérfræðingar í
vettvangsathugunum, um virka stýringu hlutabréfasjóða og Loftur Hreinsson, sérfræðingur í áhættugreiningu,
skrifar grein undir yfirskriftinni: Samsettur áhættuvísir fyrir
íslenska fjármálakerfið. Þá skrifar Jón
Ævar Pálmason, sérfræðingur í áhættugreiningu, greinina: Opinber birting upplýsinga um vátryggingastarfsemi og Hjálmar Stefán Brynjólfsson, lögfræðingur á sviði
yfirlögfræðings glímir við spurninguna: Hvenær öðlast PSD2 gildi hér á
landi?