Sigþór Hákonarson
Sigþór Hákonarson, sem hafði starfsleyfi vátryggingamiðlara , sbr. ákvæði laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, hefur skilað inn starfsleyfi sínu, skv. 36. gr. fyrrgreindra laga. Í samræmi við tilkynningu um að hann hafi hætt starfsemi, sem vátryggingamiðlari, hefur Fjármálaeftirlitið fellt Sigþór Hákonarson út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning þess efnis birt í Lögbirtingablaðinu.