Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II
Annar kynningarfundur Fjármálaeftirlitsins, vegna innleiðingar Solvency II, verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar nk. kl. 9:00 í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins að Katrínartúni 2, þriðju hæð. Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum vátryggingafélaganna, ytri og innri endurskoðendum þeirra, sem og öðrum sem áhuga kunna að hafa.
Fundardagskrá er eftirfarandi:
- Gjaldþolsliðir (Own funds)
- Gæði gagna
- Hlutverk innri endurskoðanda í Solvency II
Gert er ráð fyrir að fundi ljúki kl. 10:30. Skráning fer fram á fme@fme.is og er skráningarfrestur til og með 26. janúar nk.