Drög að reglum um birtingu upplýsinga um fjárfestingarkostnað lífeyrissjóða
Fjármálaeftirlitið hefur
gefið út umræðuskjal nr. 2/2017,
sem
inniheldur drög að reglum um breytingu á reglum nr. 335/2015 um ársreikninga
lífeyrissjóða.
Með drögunum er
upplýsingagjöf lífeyrissjóða vegna fjárfestingarkostnaðar samræmd, en við
samþykkt reglnanna verður lífeyrissjóðum skylt að birta upplýsingar samkvæmt
stöðluðu formi sem er hluti af reglunum.
Fjármálaeftirlitið mun
gefa lífeyrissjóðum kost á að gera athugasemdir við drögin og er frestur til að
senda inn umsagnir vegna regludraganna er til 26. janúar næstkomandi.