Evrópska eftirlitsstofnunin á vátrygginga- og lífeyrismarkaði (EIOPA) birtir umræðuskjal um drög að upplýsingaskjali um vátryggingaafurðir
Evrópska
eftirlitsstofnunin á vátrygginga og lífeyrismarkaði (EIOPA) sendi hinn fyrsta
ágúst síðastliðinn frá sér fréttatilkynningu vegna umræðuskjals um
drög að tæknistaðli fyrir upplýsingaeyðublað varðandi skaðatryggingar. Markmiðið
er að samræma framsetningu upplýsinga um vátryggingaafurðir. Upplýsingablaðið
fær viðskiptavinur í hendur áður en hann tekur ákvörðun um vátryggingu.
Boðið er upp á að senda inn athugasemdir til EIOPA fyrir
lok 24. október næstkomandi.