Fjármálaeftirlitið birtir rekstraráætlanir fyrir árabilið 2014-2018
Fjármálaeftirlitið hefur gert rekstraráætlanir stofnunarinnar fyrir árabilið 2014 til 2018 aðgengilegar á heimasíðu.
Rekstraráætlanir Fjármálaeftirlitsins voru fram til ársins 2014 birtar á vef Alþingis í tengslum við árlegar breytingar á lögum nr. 99/1999 um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með breyttu verklagi fjármála- og efnahagsráðuneytisins við vinnslu fjárlaga fyrir árið 2014 var birtingu hætt á vef Alþingis. Því birtir Fjármálaeftirlitið nú rekstraráætlanirnar frá og með 2014 og fram til næsta árs á heimasíðu eftirlitsins.