Fjármálaeftirlitið fjallar um stöðu lífeyrissjóðanna 2015
Fjármálaeftirlitið
hefur birt samantekt yfir stöðu lífeyrissjóða við árslok 2015. Efnið er unnið úr þeim
gögnum sem Fjármálaeftirlitinu hafa borist frá Lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar
miðað við árslok 2015. Lífeyriskerfið er öflugt
og heldur áfram að stækka í efnahagslegu tilliti. Á liðnu ári voru starfandi 26
lífeyrissjóðir í 76 deildum samtryggingar og séreignar. Aðrir vörsluaðilar
séreignasparnaðar voru sjö talsins. Tryggingafræðileg staða samtryggingadeilda
lífeyrissjóða heldur áfram að batna. Eftir sem áður er staða sjóða með ábyrgð
ríkis og sveitarfélaga sú að þeir eru með umtalsverðan halla.
Fréttatilkynning um stöðu lífeyrissjóðanna 2015