Fjármálaeftirlitið gefur út tvö umræðuskjöl
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 1/2016 um drög að leiðbeinandi tilmælum um innri stjórnarhætti fjármálafyrirtækja og umræðuskjal nr. 2/2016 um viðmið og aðferðafræði vegna SREP.
Markmiðið með umræðuskjali nr. 1/2016 um drög að leiðbeinandi tilmælum um innri stjórnarhætti er að skýra nánar skyldur stjórnar og stjórnenda fjármálafyrirtækja vegna ákvæða í lögum sem varða stjórnarhætti með því að tilgreina hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fullnægja þeim skyldum.
Markmiðið með umræðuskjali nr. 2/2016 um viðmið og aðferðafræði vegna SREP er að skilgreina og kynna aðferðafræði og framkvæmd könnunar- og matsferlis Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir því að athugasemdir umsagnaraðila við umræðuskjölin berist eigi síðar en 18. mars næstkomandi.