Fjármálaeftirlitið hefur metið Atrium ehf. og Gísla Val Guðjónsson hæf til að fara með virkan eignarhlut í Rekstrarfélagi Virðingar hf.
Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Atrium ehf., sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Rekstrarfélagi Virðingar hf. yfir 50%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Gísla Val Guðjónsson, eiganda Atrium ehf., hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Rekstrarfélagi Virðingar hf. yfir 50% með óbeinni hlutdeild.