Fjármálaeftirlitið hefur metið Birtu lífeyrissjóð hæfan til að fara með virkan eignarhlut í Virðingu hf.
Hinn 19. janúar 2017 komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Birta lífeyrissjóður væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Virðingu hf., sem nemur allt að 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.