Fjármálaeftirlitið hefur metið Kviku banka hf. hæfan til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf.
Hinn 27. desember sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hf., kt. 540502-2930, væri hæfur til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Kortaþjónustunni hf. eða sem nemur yfir 50%, skv. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 120/2011 um greiðsluþjónustu.