Fjármálaeftirlitið hefur metið Solo Invest ehf. og Örn Þorsteinsson hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Straumi sjóðum hf.
Hinn 8. september sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri
niðurstöðu að Solo Invest ehf., kt. 620109-0610, sé hæft til að fara með virkan
eignarhlut í Straumi
sjóðum hf. sem nemur 50%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Örn Þorsteinsson hæfan
til að fara með 50% virkan eignarhlut í Straum sjóðum hf., með óbeinni
hlutdeild.