Fræðsluefni gefið út um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Dómsmálaráðuneytið hefur birt fræðsluefni um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á vef sínum. Um er að ræða tvo bæklinga sem fjalla annars vegar um rannsóknar- og tilkynningarskyldu tilkynningarskyldra aðila og hins vegar um þjálfun starfsmanna.
Frekara fræðsluefni er í undirbúningi, þar á meðal um einstaka efnisþætti laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka svo sem um ábyrgðarmenn, áreiðanleikakannanir, áhættumat og fleira. Auk þess er í undirbúningi efni sem beint er að einstökum tilkynningarskyldum aðilum svo sem lögmönnum, fasteignasölum og endurskoðendum, svo og fjármálamarkaðnum í heild sinni.
Fjallað er um eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á vef Fjármálaeftirlitsins og þar verður einnig hægt að nálgast það fræðsluefni sem gefið er út um þetta efni.