Fjármálaeftirlitið veitir Straumi IB starfsleyfi sem lánafyrirtæki
Fjármálaeftirlitið veitti þann 31. ágúst 2011 Straumi IB hf., kt. 640210-0440, Borgartúni 25, 105 Reykjavík, starfsleyfi sem lánafyrirtæki samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Starfsleyfi Straums IB hf. tekur til móttöku endurgreiðanlegra skuldaviðurkenninga frá almenningi skv. b lið 1. tölul., útlána skv. 2. tölul., viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti sem felst í móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga skv. tölulið 6 a, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina skv. tölulið 6 b, fjárfestingarráðgjöf skv. tölulið 6 d, sölutryggingu í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga skv. tölulið 6 e og umsjón með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skv. tölulið 6 f í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Straumur IB hf. hyggst að auki stunda starfsemi á grundvelli 1. tölul. (móttaka endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi í formi skuldaviðurkenninga), b, c og d lið 2. tölul., 6. tölul., a til e lið 7. tölul., 8. tölul., 9. tölul. og 12. tölul. 1. mgr. 20. gr. og a, b, c, e, f og g lið 1. tölul. og a til g lið 2. tölul. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.