Fjármálaeftirlitið hefur í dag birt á heimasíðu sinni, túlkun á ákvæðum 62. gr. og 63. gr. laga nr. 33/2003, um verðbréfaviðskipti.
Túlkunin lýtur að því hvernig haga beri tilkynningum um innherjaviðskipti í eftirfarandi tilvikum:
- Tilkynningar um framvirka samninga, skv. 63. gr. og 64. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 33/2003
- Tilkynningar um kaupréttarsamninga, skv. 63. gr. og 64. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 33/2003
- Tilkynningar um arðgreiðslur og kaupauka, skv. 63. gr. og 64. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 33/2003