Samruni Tinda Verðbréfa hf. við Auði Capital hf.
Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 10. janúar 2012 samruna Tinda Verðbréfa hf. við Auði Capital hf. á grundvelli 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Auður Capital hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Tinda Verðbréfa hf. og verða félögin sameinuð undir nafni Auðar Capital hf.
Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.