Frétt: Niðurstaða af áhrifum álagsprófa á eiginfjárhlutföll stærstu bankanna miðað við árshlutauppgjör í lok júní 2006
Fjármálaeftirlitið hefur reiknað út áhrif af álagsprófi í samræmi við ákvæði reglna nr. 530/2004 með áorðnum breytingum. Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar á hlutabréfum, markaðsskuldabréfum, vaxtafrystum/virðisrýrðum útlánum og fullnustueignum og áhrifa af lækkun á gengi íslensku krónunnar án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir lögboðið lágmark.
Heildarniðurstaða framangreindra álagsprófa er eftirfarandi:
Kaupþing |
Glitnir banki |
Landsbanki |
Straumur |
|
Eiginfjárhlutfall (CAD hlutfall) |
12,1% |
13,7% |
15,1% |
31,7% |
Þar af eiginfjárþáttur A (Tier 1) |
8,7% |
9,1% |
12,9% |
30,2% |
Eiginfjárhlutfall (CAD) eftir álagspróf |
9,2% |
12,5% |
12,7% |
24,0% |
Viðmiðin í áfallaprófinu má finna undir þessum tengli.