Anna Mjöll Karlsdóttir ráðin yfirlögfræðingur Fjármálaeftirlitsins
Anna Mjöll Karlsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu. Hún hefur langa starfsreynslu í stjórnsýslunni og í dómskerfinu, en hefur starfað hjá Fjármálaeftirlitinu frá 1. september 2010, síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri eftirlitssviðs. Anna mun taka við hinu nýja starfi hinn 5. nóvember næstkomandi.