Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns
Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns:
1) Yfirfærslu skaðatryggingastofns frá Nippon Insurance Company of Europe Limited to Nipponkoa Insurance Company (Europe) Limited.
2) Yfirfærslu skaðatryggingastofns frá Unipol Assicurazioni s.p.a. og mögulega einnig Milano Assicurazioni s.p.a. til Fondiaria-Sai s.p.a.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.