Skýrslur um góða viðskiptahætti á vátryggingamarkaði í umsagnarferli
EIOPA (Evrópska eftirlitsstofnunin á vátrygginga- og lífeyrissjóðamarkaði) óskar eftir umsögnum um tvær skýrslur sem stofnunin hefur gefið út um viðskiptahætti á vátryggingamarkaði.Annars vegar er um að ræða skýrslu um samanburðarvefsíðu um vörur á vátryggingamarkaði. Hins vegar er skýrsla um þekkingu og hæfni dreifingaraðila vátryggingaafurða.
Umsagnarferlið er opið til 20. september 2013. Sjá má frétt um málið á heimasíðu EIOPA. Þar er skýrslurnar einnig að finna.