Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna
Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna:- Yfirfærslu skaðatryggingastofns frá Mitsui Sumitomo Insurance Company (Europe) Limited til MSIG Insurance Europe Limited.
- Yfirfærslu skaðatryggingastofns frá A/S Det Kjobenhavnske Reassurance-Compagni til Marlon Insurance Company Limited.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.