Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna
Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna:1. Yfirfærsla líftryggingastofns frá HSBC Life (Europe) Limited til HSBC Life Assurance (Malta) Limited.
2. Yfirfærslu skaðatryggingastofns frá Chevanstell Limited til R&Q Insurance (Malta) Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.