YFIRTÖKUR FYRIRTÆKJA - Breytt dagskrá
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á breyttri dagskrá ráðstefnu um yfirtökureglur sem haldin verður á Hótel Nordica þriðjudaginn 2. október.
Af persónulegum ástæðum hefur João Gião, ráðgjafi fyrir portúgalska verðbréfaeftirlitið boðað forföll á síðustu stundu. Þetta hefur í för með sér að ráðstefnunni lýkur kl. 10:30 í stað 10:50 eins og áður var auglýst.
Ráðstefnan fer fram 2. október á Hótel Nordica og hefst kl. 8:15 með morgunkaffi og lýkur kl. 10:30. Skráning fer fram hjá fme@fme.is , eigi síðar en 1. október.