Undanþága frá tilboðsskyldu í Icelandair Group hf.
Fjármálaeftirlitið hefur verið með til athugunar skipan mála í eignarhaldi Icelandair Group hf., með hliðsjón af yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Athugunin leiddi í ljós að Íslandsbanki hf. hefði óbein yfirráð í Icelandair Group hf., vegna stöðu sinnar sem lánardrottinn stórra hluthafa félagsins, sem ekki standa við skuldbindingar sínar samkvæmt lánasamningum, og að Íslandsbanka hf. bæri því skylda til að gera öðrum hluthöfum félagsins yfirtökutilboð.
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að Íslandsbanka hf. skuli veitt skilyrt undanþága frá tilboðsskyldu vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem bankinn er í sem kröfuhafi gagnvart stórum hluthöfum félagsins. Að mati Fjármálaeftirlitsins uppfyllir bankinn þau skilyrði sem gera verður til að veðhafa sé veitt slík undanþága.
Nánari upplýsingar til fjölmiðla veitir Sigurður G. Valgeirsson, sgv@fme.is, s: 525-2700 eða gsm 840-3861.