Fréttatilkynning - Umræðuskjal CEIOPS vegna nýrrar tilskipunar um vátryggingastarfsemi
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á umræðuskjali sem hægt er að nálgast á heimasíðu CEIOPS. Um er að ræða tillögur að ráðgjöf til Framkvæmdastjórnar ESB og varða þær mat á því hvort eftirlit með ríkjum utan EES sé með sambærilegum hætti og innan svæðisins varðandi endurtryggingar og eftirlit með samstæðum. Umræðuskjalið er hluti af tillögum CEIOPS varðandi nánari útfærslu á Solvency II tilskipuninni. Hagsmunaaðilar geta sent inn athugasemdir við umræðuskjalið til CEIOPS á netfangið: secretariat@ceiops.eu til 5. febrúar 2010.
Hægt er að nálgast umræðuskjalið á vefsíðu CEIOPS .