Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu á vátryggingastofni
Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna:1. Frá Barclays Life Assurance Company Limited til Windsor Life Assurance Company Limited.
2. Frá Ecclesiastical Life Limited til Homeowners Friendly Society Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra yfirfærslna innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Fjármálaeftirlitið.
26. ágúst 2010.